Wednesday, December 31, 2008

Katharina challenge - sketch #37


Loksins er ég farin að gera kort aftur eftir jólatörnina :o) Þetta er fyrsta kortið sem ég geri í margar vikur sem er ekki jólakort. Katharina er með skissuáskorun í gangi til 4. janúar og ég ákvað að drífa mig og taka þátt því það er allt of langt síðan ég hef tekið þátt í áskorunum.

Finally a card again and not a Christmas card :o) Katharina has a sketch challenge going on until 4th January and I am happy to enter this card. It has been far too long since I have participated in a challenge.

PP: Daisy D
Stamps: Whiff of Joy and Inkadinkado
Flowers: Prima

Thursday, November 27, 2008

Jólakort / Christmas Cards


Úff, langt síðan ég hef sett nokkuð hér inn. Ég er búin að klára öll jólakortin sem ég ætla að búa til fyrir þessi jól - 45 að tölu - og er ekkert smá ánægð !! Átti ekki von á að klára áður en desember rynni upp :o) Svona til að halda upp á það koma hér tvö af þeim.

It´s been a long time since my last post. I have finished making all 45 of my Christmas cards this year, much earlier than I expected :o) So here are two of them.

Thursday, November 6, 2008

High Hopes #6 & Friday Sketchers #26


Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef sameinað tvær áskoranir í eitt kort :o) Áskorun vikunnar á High Hopes blogginu er að gera jólakort með óhefðbundnum litum og skissan er áskorun vikunnar á Friday Sketchers blogginu.

My first time ever to combine two challenges :o) This week´s challenge on the High Hopes blog is to make a Christmas card using non-traditional colors. The sketch is this week´s challenge on the Friday Sketchers blog.

Also Amy the High Hopes diva has some blog candy to give away, check out her blog here.

Sunday, November 2, 2008

Skrapp í {kort}er #1

Loksins dreif ég í því að gera kort fyrir fyrstu áskorunina á nýja íslenska áskoranablogginu Skrapp í {kort}er. Áskorunin er að gera síðu eða kort með distressed/gamaldags lúkki. Og þar sem ég er að reyna að potast áfram með jólakortagerðina þá varð þetta jólakort til og mér finnst það bara koma vel út :o) Liturinn á textahringnum er eitthvað brenglaður á myndinni, hann er mun líkari hinum brúnu litunum í raun og veru.

Finally I got around to making a card for the first Icelandic challenge blog called Skrapp í {kort}er. The challenge is to make a distressed page or card. I am very happy with how this Christmas card turned out :o) The brown cardstock with the sentiment circle is not so different from the other brown colors IRL.

Stamps: hÄnglar & stÄnglar and Scrapmagasinet
Other stuff: misc from my stash

Thursday, October 23, 2008

Friday Sketchers #24


Þetta jólakort gerði ég eftir skissu vikunnar á Friday Sketchers áskoranablogginu. Ég er nú ekki alveg nógu ánægð með það en læt það samt flakka.

I made this Christmas card following this week´s sketch on the Friday Sketchers challenge blog. I am not quite satisfied with the card but it will have to do.

Thursday, October 16, 2008

Katharina´s sketches #8 and #22


Tvö jólakort í viðbót. Þessi gerði ég eftir skissum á blogginu hennar Katharinu. Skissurnar hennar eru frábærar, það er auðvelt að finna einhverja sem hentar því sem maður er að gera hverju sinni.

Two more Christmas cards. I made these following sketches on Katharina´s blog. I love her sketches, they are so much fun to use and you can always find one that suits whatever you have in mind.

Tuesday, October 7, 2008

Sukkersött #10

Jæja, nú er ég komin í jólakortagírinn :o) Þetta er mitt framlag í áskorun vikunnar á norska Sukkersött blogginu. Í þetta sinn á að nota tvo liti, grænt og brúnt. Vonandi slepp ég með hvítu snjókornin !! Það er smá glimmer á loðnu köntunum á fötunum hennar þó það sjáist ekki vel á myndinni.

I have been working on some Christmas cards lately. This one is my entry to this week´s challenge on the Norwegian challenge blog Sukkersött. The challenge is to use green and brown. I hope the white snowflakes are OK !! There is some glitter on the trims of her hat and coat although it doesn´t show very well in the picture.

Friday, October 3, 2008

Scrapmagasinet Reader Challenge #3


DT-ið hjá Scrapmagasinet er með áskorun að gera eitthvað annað en kort. Þessi minnisblokk er alls ekki stór, ég vona að ekki sé stærðarlágmark þannig að hún sé gilt framlag. Neðri myndin sýnir bakhliðina.

The Scrapmagasinet DT is having a reader challenge which is to make "anything but a card". This is my entry. Not a very big notebook, but I hope there is no size limit so it qualifies ;o)
The picture below shows the backside.

Paper: BG Lily Kate
Stamps: Scrapmagasinet and Inkadinkado
Flowers: Prima

Thursday, September 25, 2008

Whiff of Joy - Guest Designer Call



Katharina í Whiff of Joy netversluninni er að leita að gestahönnuði fyrir 2 mánuði og er því með áskorun í gangi. Ég geri mér sko engar vonir um að hreppa hnossið, heilu kippurnar af klárum kortakonum eru búnar að senda inn kort. En það er samt meiriháttar gaman að taka þátt þannig að ég gerði þetta kort eftir skissu #28 á blogginu hennar Katharinu. Mig langaði að prófa að gera svona kort sem er ekki með heilli framhlið og þetta er útkoman.

Katharina from the wonderful Whiff of Joy on line stamp store is looking for a guest designer for 2 months. She´s having a challenge, you are to make a card following one of her sketches. I don´t for a minute think I´ll be lucky enough to win, there are so many talented cardmakers out there who are participating. But since I love challenges I decided to participate anyway and here is the card I made from sketch #28. I had a lot of fun making one of those cards where a section of the front is cut off. A translation for those of you who don´t read Icelandic ;o) when the card is closed the sentiment reads "congratulations" and when you open it you reveal the rest "on your birthday".

Paper: BasicGrey
Stamps: Magnolia and Inkadinkado
Flowers: Prima

Tuesday, September 23, 2008

Sukkersött #8

Áskorun vikunnar á norska kortablogginu Sukkersött er að nota eitthvað sem ekki telst venjulegt skrappdót. Ég fór í gegnum skúffur og skápa og lagði hausinn í bleyti og þetta er útkoman. Ég flatti út lok af dós undan myntum, notaði álpappír bæði undir myndina og í ræmum og til mótvægis við allt þetta glansandi pönsaði ég út hring úr sandpappír. Og ef maður vill pæla voða djúpt má vel tengja álið við flugvélina því flugvélar eru jú smíðaðar úr áli, ekki satt? ;o)

This week´s challenge on the Norwegian challenge blog Sukkersött is to use something that is normally not scrap related. I went through my drawers and this is what I came up with. I flattened a lid from a tin of mints and used aluminium foil both for matting and also cut into strips. As a contrast I punched a circle from sanding paper. Now, if you are a deep thinker and looking for a connection, planes are made from aluminium, right? ;o)

Sunday, September 21, 2008

Cute Card Thursday #28

Áskorun vikunnar á Cute Card Thursday áskoranablogginu er "matur". Ég bætti vatnsflösku frá Eat Cake á picnic-teppið hjá þessari sætu hÄnglar-stelpu af því að það er hollt að drekka vatn ;o) og notaði textastimpil frá Scrapmagasinet.

This week´s challenge on Cute Card Thursday is "food". I added a water bottle from Eat Cake to this adorable hÄnglar girl´s picnic menu and used a text stamp from Scrapmagasinet.

Paper: Chatterbox
Stamps: hÄnglar & stÄnglar, Eat Cake Graphics, Scrapmagasinet.
Flowers: Bazzill, Prima

Saturday, September 13, 2008

Scrapmagasinet DT sketch challenge #3


Stelpurnar í DT-inu hjá Scrapmagasinet eru með nýja skissu á DT-blogginu. Ég speglaði skissuna til að myndin passaði betur og fannst hæfa myndinni og textastimplinum að nota hressilega liti. Fyndið hvað borðinn er í nákvæmlega sömu litum og pappírinn þó hann sé úr Söstrene Grene og ekki bofs tengdur pappírnum :o) Ef einhver veit hvar hægt er að fá skjannahvítan vatnslitapappír má gjarnan láta mig vita, mér fyndist fallegra þegar maður er að nota hvítt að hann sé líka hvítur en ekki svona off-white.

A new sketch over at the Scrapmagasinet DT-blog. I mirrored the sketch to make it fit the image better and I used lively colors since both the image and the Icelandic text are a bit lively. I love how well the ribbon fits the colors in the paper although it is not the same brand at all. If anyone can tell me where I can find bright white watercolor paper please let me know, I would prefer it to match when I´m using bright white papers and embellies.

Paper: Sweetwater
Stamps: Scrapmagasinet
Flowers: Prima
Ribbon: Söstrene Grene

Wednesday, September 10, 2008

Eitt sett / A set of cards


Þetta fljótgerða sett af tækifæriskortum gerði ég til að prófa fleiri af nýju íslensku textastimplunum frá Scrapmagasinet. Mér finnst þeir frábærir og hægt að nota þá á svo marga vegu.

Just using up some scraps and trying out some more of the new Icelandic sentiment stamps from Scrapmagasinet. Love them :o)

Monday, September 8, 2008

Afmæliskort / Birthday card

Kláraði þetta afmæliskort á methraða í gærkvöldi, var í smá tímapressu. Kannski ekki alveg eins mikið litasamræmi og ég hefði viljað, en ... jújú ... alveg ágætt held ég.

I didn´t have much time to ponder over this card, but I think I like it anyway.

Paper: BG infuse
Stamps: hÄnglar & stÄnglar
Flowers: Prima

Sunday, August 31, 2008

Scrapmagasinet DT sketch challenge #2

Loksins gaf ég mér tíma til að gera kort eftir skissu frá stelpunum í DT-inu hjá Scrapmagasinet. Ég var búin að hlakka mikið til að prófa nýju íslensku textastimplana frá Scrapmagasinet og þetta er fyrsta kortið þar sem ég nota þá. Ég er mjög ánægð með þá og á pottþétt eftir að nota þá heilmikið :o)

At last I was able to make a card following sketch #2 from the girls in the Scrapmagasinet DT. I was so excited to try out the new Icelandic sentiment stamps from Scrapmagasinet. Needless to say I love them :o)

Paper: from my stash of misc leftovers
Stamps: Scrapmagasinet
Flowers: Prima

Saturday, August 23, 2008

Afmæliskort / Birthday card

Hér kemur lítið áttræðisafmæliskort. Ég held að það sé nú bara frekar Önnulegt og ekki mikið meira um það að segja :o)

A small birthday card for a lady who just turned 80 :o)

Paper: Bazzill and BG Lily Kate
Stamp: Eat Cake Graphics (love those stamps)
Flowers: Bazzill and Prima

Thursday, August 7, 2008

M - Afmæliskort / birthday card

Þetta verður síðasta kortið í þessari kortatörn. Framundan er sumarbústaðaferð og ég ætla að reyna að skrappa nokkar síður þar, hef látið það sitja á hakanum í kortaæði síðustu vikna !! Þetta kort tók talsverðum breytingum frá upphaflegri hugmynd eins og svo oft áður, en ég er ekki alveg að fíla blómið, finnst hvítu angarnir eitthvað skrítnir :o/

I am not quite happy about the flower here, the white flourishes look a bit strange to me but this will have to do for now.

Wednesday, August 6, 2008

Cute Card Thursday #21

Þema vikunnar á Cute Card Thursday áskoranablogginu er "inni". Hér er því Tilda á náttkjólnum með morgunkaffið á eldhúsbekknum :o) Eftir nokkurt þóf og vangaveltur um pappírsval er þetta útkoman og ég er bara mjög ánægð með hana.

This week on Cute Card Thursday the theme is "in the house". So here is Tilda in her nightie having her morning coffee on the kitchen bench :o) I struggled a bit with choosing the paper for this one, but I like the way it turned out.

Paper: Bazzill, BasicGrey and unknown
Stamps: Magnolia and unknown
Flowers: Prima and unknown

Sunday, August 3, 2008

Annað brúðarkort / Another wedding card

Þriðja hjartalaga kortið sem ég geri á einni viku. Held ég geri ekki fleiri hjartalaga í bili ;o) Held að ég sé ánægðari með hitt brúðarkortið sem ég gerði fyrir fáeinum dögum, en nenni ekki að velta þessu lengur fyrir mér og læt það vera svona.

This is the third heartshaped card I make in one week, I think I´ll now turn to the square ones again ;o) I like my last wedding card better than this one, but this will have to do as I don´t feel like pondering over it much longer.

Saturday, August 2, 2008

Scrapmagasinet Reader Challenge #1

Stelpurnar í DT-inu hjá Scrapmagasinet eru með áskorun. Ég er með seinni skipunum að klára, síðasti dagurinn er í dag. Skilyrðin eru að kortið á ekki að vera ferkantað í hefðbundinni stærð, það á að nota rautt, appelsínugult og stimpil frá Scrapmagasinet. Ég er nú bara nokkuð ánægð með útkomuna :o)

The girls in the Scrapmagasinet DT are having a challenge which is ending today. These are the rules:
  • Not a standard size 4.25 x 5.50
  • Not Square
  • It also has to include the colors RED & ORANGE
  • You MUST use a Scrapmagasinet Stamp
I don´t normally use orange much but I think I like how this turned out :o)

Paper: Bazzill, BasicGrey, Fancy Pants
Stamp: Scrapmagasinet
Flowers: Prima & unknown

Thursday, July 31, 2008

Brúðarkort / Wedding card


Ég var beðin að gera brúðarkort. Mig langaði að hafa það fölt og látlaust ... kannski er það of fölt ... ? Ég er samt mjög ánægð með útkomuna.

I was asked to make a wedding card. I wanted it to be pale and simple ... too pale perhaps ... ? Anyway I like the way it turned out.

Paper: BasicGrey
Stamp: Magnolia
Flowers: Prima

Tuesday, July 29, 2008

Cute Card Thursday #20

Eitt kort á dag kemur skapinu í lag :o) Og meðan ég er í sumarfríi get ég leyft mér að sökkva mér meira ofan í kortagerðina en aðra daga :o) Finnst ykkur þessi stimpill ekki passa ótrúlega vel við áskorun vikunnar á Cute Card Thursday áskoranablogginu sem er "Things that grow"? Það er nefnilega ekki bara gróður sem vex ...

I couldn´t think of a more appropriate image to use for this week´s challenge on the Cute Card Thursday challenge blog which is "Things that grow", especially since they gave the clue that there are more things than plants that grow ...

Monday, July 28, 2008

Sarah Kay #4



Þetta kort gerði ég eftir áskorun vikunnar á Sarah Kay áskoranablogginu. Ég fylgdi skissunni en speglaði hana. Ég er svoooo ánægð með hvað ég náði vel að láta litina í myndinni passa við pappírinn :o)

I made this card following (and mirroring) the sketch on this week´s Sarah Kay challenge blog. It always makes me happy when I manage to match the colors in the paper while coloring the image, so today I´m very happy :o)

Sunday, July 27, 2008

Whiff of Joy


Katharina er að opna nýja vefverslun með stimpla. Hún er að auglýsa eftir gestahönnuði og umsækjendur eiga að gera kort eftir þessari skissu. Ég ákvað að senda inn kort að gamni mínu og gerði þetta 50 ára brúðkaupsafmæliskort. Þó að kortið sé hjartalaga fór ég samt eftir skissunni :o). Fullt af gylltu skrauti þar sem 50 ára er gullbrúðkaup og ég reyndi að taka myndina þannig að þetta gyllta sæist vel (það sést enn betur ef þú smellir á myndina og skoðar hana risastóra) :o). Litirnir í myndinni af parinu virðast því örlítið fölari en þeir eru í raun. Verslun Katharinu heitir Whiff of Joy og hún ætlar að byrja að taka preorder pantanir miðvikudaginn 30. júlí. Hún er með tvo frábæra stimplahönnuði á sínum snærum og stimplarnir eru geggjað flottir :o)

Katharina is opening a new stamp shop. She has a guest designer call and for fun I decided to give it a try. As you can see I followed the sketch given although the card is heart shaped :o) The card is for a 50 years wedding anniversary and because 50 years is called gold-anniversary there is a lot of gold on this card. I was trying to take the picture so that you could see the gold edges and all the gold embellies so it looks the sunshine is toning down the colors of the stamped image a bit. Katharina´s shop is called Whiff of Joy. On Wednesday 30th July she will start taking preorders and you should take a look at these gorgeous stamps created by two wonderfully talented designers.

Thursday, July 24, 2008

Tilda & Co #29


Ég gerði tvö svipuð kort með áskorun vikunnar á Tilda & Co áskoranablogginu í huga og get ómögulega gert upp á milli þeirra. Þessa vikuna er þemað skordýr :o)

I made two similar cards and I am entering them both in this weeks challenge on the Tilda & Co challenge blog as I can´t choose just one. This week the challenge is "Bugs" :o)

Paper: BasicGrey
Flowers: Prima
Stamps: Magnolia & Woodware

Tuesday, July 22, 2008

Cute Card Thursday #19

Ég er nú ekkert alltof ánægð með þetta kort og var að hugsa um að setja það alls ekki á netið. En læt það nú samt flakka í Cute Card Thursday áskorunina. Þessa vikuna á að gera kort með bara dýrum, engu fólki.

I am not too happy with how this card turned out but I´m entering it in the Cute Card Thursday challenge anyway. This week the challenge is "Animals only - No people allowed".

Sunday, July 13, 2008

Heather´s blog candy challenge

Þetta kort er mitt framlag í kortaáskorun sem Heather er með á blogginu sínu. Kíkið endilega á þetta, hún er með verðlaun í boði. Helst á að nota stimpil frá Scrapmagasinet og það gerði ég einmitt, en það er þó ekki nauðsynlegt :o)

Heather over at Hopefully Heather´s Stuff is offering some blog candy in a sketch challenge. You are supposed to use a stamp from Scrapmagasinet if you have one and I have done just that :o)

Paper: Two scoops collection from BasicGrey
Stamps: Rakle Sitter from Scrapmagasinet and Row of Grass from Eat Cake Graphics

Saturday, July 12, 2008

Sarah Kay #1

Þetta kort gerði ég fyrir Sarah Kay áskoranabloggið. Áskorunin var að nota fjólubláan lit á kort. Ég nota nú ekki oft fjólublátt, en mér finnst þetta kort bara koma vel út. Ég var að nota Sarah Kay stimpil í fyrsta sinn (fékk hann lánaðan hjá góðri konu) og fannst það vel við hæfi þar sem þetta var fyrsta áskorunin á þessu Sarah Kay bloggi. Ég þarf nauðsynlega að fá mér nýjan blender-penna, mínir eru báðir orðnir hálf þurrir og ómögulegir :o/

I made this card for the very first Sarah Kay challenge which is "lovely lilac". This was a first for me also as I was using a Sarah Kay stamp for the first time, I borrowed it from a friend as I don´t own one myself ... yet !!

Paper: Bazzill and BasicGrey
Flower: Prima

Thursday, June 26, 2008

Tilda & Co #25


Þetta kort gerði ég fyrir áskorun nr. 25 á Tilda & Co áskoranablogginu. Þessa vikuna á að nota doppur. Þær urðu nú reyndar minna áberandi en ég ætlaði í upphafi, en svona er þetta bara, endanleg útkoma er oft ansi frábrugðin upphaflegu hugmyndinni :o)

I made this card for Tilda & Co challenge #25. This week the challenge is Dots.

Paper: BasicGrey and Bazzill
Stamps: Magnolia and High Hopes
Flowers: Prima

Friday, June 20, 2008

Cute Card Thursday #15


Velkomin á glænýja bloggið mitt :o) Ég er smám saman að læra á þetta !!

Þetta kort gerði ég fyrir Cute Card Thursday áskoranabloggið, í þessari viku er áskorunin að gera afmæliskort. Þetta kort er nú ekki dæmigerður minn stíll, en afmæliskort er það engu að síður :o)

Welcome to my brand new blog :o) I am completely new to blogging but I am trying to get the hang of it !!

I made this card for this week´s challenge on the Cute Card Thursday blog, which is to make a birthday card. The card is not my usual style, but I think I like it anyway :o)

Tuesday, June 10, 2008

Prufa

Best að setja hér inn eina færslu og sjá hvernig þetta virkar :o)