Ég var að skoða bloggið hennar Donnu og heillaðist gjörsamlega af kortunum hennar sem eru sko allavega í laginu. Mig langaði að prófa að gera sjálf hjólhýsakort þar sem ég var einmitt á höttunum eftir hugmynd að afmæliskorti fyrir sextugan hjólhýsaeiganda, golfara og kórsöngvara. Ég tók því fram blað og blýant og reyndi að laða fram einhvern smá dreitil af teiknihæfileikum. Merkilegt nokk, mér tókst að klambra saman þessu korti og er nú bara nokkuð ánægð með mig :o)
I stumbled onto Donna´s blog while browsing in blogland. What a talented lady she is!! She creates all kinds of wonderful shaped cards. I was so inspired by her camper card that I decided to try to make one myself as I had to make a card for a 60 year old dedicated camper who loves to sing and golf. This is what I came up with. The sign on the doorknob translates: Out for a game of golf :o)
