Thursday, July 31, 2008

Brúðarkort / Wedding card


Ég var beðin að gera brúðarkort. Mig langaði að hafa það fölt og látlaust ... kannski er það of fölt ... ? Ég er samt mjög ánægð með útkomuna.

I was asked to make a wedding card. I wanted it to be pale and simple ... too pale perhaps ... ? Anyway I like the way it turned out.

Paper: BasicGrey
Stamp: Magnolia
Flowers: Prima

Tuesday, July 29, 2008

Cute Card Thursday #20

Eitt kort á dag kemur skapinu í lag :o) Og meðan ég er í sumarfríi get ég leyft mér að sökkva mér meira ofan í kortagerðina en aðra daga :o) Finnst ykkur þessi stimpill ekki passa ótrúlega vel við áskorun vikunnar á Cute Card Thursday áskoranablogginu sem er "Things that grow"? Það er nefnilega ekki bara gróður sem vex ...

I couldn´t think of a more appropriate image to use for this week´s challenge on the Cute Card Thursday challenge blog which is "Things that grow", especially since they gave the clue that there are more things than plants that grow ...

Monday, July 28, 2008

Sarah Kay #4



Þetta kort gerði ég eftir áskorun vikunnar á Sarah Kay áskoranablogginu. Ég fylgdi skissunni en speglaði hana. Ég er svoooo ánægð með hvað ég náði vel að láta litina í myndinni passa við pappírinn :o)

I made this card following (and mirroring) the sketch on this week´s Sarah Kay challenge blog. It always makes me happy when I manage to match the colors in the paper while coloring the image, so today I´m very happy :o)

Sunday, July 27, 2008

Whiff of Joy


Katharina er að opna nýja vefverslun með stimpla. Hún er að auglýsa eftir gestahönnuði og umsækjendur eiga að gera kort eftir þessari skissu. Ég ákvað að senda inn kort að gamni mínu og gerði þetta 50 ára brúðkaupsafmæliskort. Þó að kortið sé hjartalaga fór ég samt eftir skissunni :o). Fullt af gylltu skrauti þar sem 50 ára er gullbrúðkaup og ég reyndi að taka myndina þannig að þetta gyllta sæist vel (það sést enn betur ef þú smellir á myndina og skoðar hana risastóra) :o). Litirnir í myndinni af parinu virðast því örlítið fölari en þeir eru í raun. Verslun Katharinu heitir Whiff of Joy og hún ætlar að byrja að taka preorder pantanir miðvikudaginn 30. júlí. Hún er með tvo frábæra stimplahönnuði á sínum snærum og stimplarnir eru geggjað flottir :o)

Katharina is opening a new stamp shop. She has a guest designer call and for fun I decided to give it a try. As you can see I followed the sketch given although the card is heart shaped :o) The card is for a 50 years wedding anniversary and because 50 years is called gold-anniversary there is a lot of gold on this card. I was trying to take the picture so that you could see the gold edges and all the gold embellies so it looks the sunshine is toning down the colors of the stamped image a bit. Katharina´s shop is called Whiff of Joy. On Wednesday 30th July she will start taking preorders and you should take a look at these gorgeous stamps created by two wonderfully talented designers.

Thursday, July 24, 2008

Tilda & Co #29


Ég gerði tvö svipuð kort með áskorun vikunnar á Tilda & Co áskoranablogginu í huga og get ómögulega gert upp á milli þeirra. Þessa vikuna er þemað skordýr :o)

I made two similar cards and I am entering them both in this weeks challenge on the Tilda & Co challenge blog as I can´t choose just one. This week the challenge is "Bugs" :o)

Paper: BasicGrey
Flowers: Prima
Stamps: Magnolia & Woodware

Tuesday, July 22, 2008

Cute Card Thursday #19

Ég er nú ekkert alltof ánægð með þetta kort og var að hugsa um að setja það alls ekki á netið. En læt það nú samt flakka í Cute Card Thursday áskorunina. Þessa vikuna á að gera kort með bara dýrum, engu fólki.

I am not too happy with how this card turned out but I´m entering it in the Cute Card Thursday challenge anyway. This week the challenge is "Animals only - No people allowed".

Sunday, July 13, 2008

Heather´s blog candy challenge

Þetta kort er mitt framlag í kortaáskorun sem Heather er með á blogginu sínu. Kíkið endilega á þetta, hún er með verðlaun í boði. Helst á að nota stimpil frá Scrapmagasinet og það gerði ég einmitt, en það er þó ekki nauðsynlegt :o)

Heather over at Hopefully Heather´s Stuff is offering some blog candy in a sketch challenge. You are supposed to use a stamp from Scrapmagasinet if you have one and I have done just that :o)

Paper: Two scoops collection from BasicGrey
Stamps: Rakle Sitter from Scrapmagasinet and Row of Grass from Eat Cake Graphics

Saturday, July 12, 2008

Sarah Kay #1

Þetta kort gerði ég fyrir Sarah Kay áskoranabloggið. Áskorunin var að nota fjólubláan lit á kort. Ég nota nú ekki oft fjólublátt, en mér finnst þetta kort bara koma vel út. Ég var að nota Sarah Kay stimpil í fyrsta sinn (fékk hann lánaðan hjá góðri konu) og fannst það vel við hæfi þar sem þetta var fyrsta áskorunin á þessu Sarah Kay bloggi. Ég þarf nauðsynlega að fá mér nýjan blender-penna, mínir eru báðir orðnir hálf þurrir og ómögulegir :o/

I made this card for the very first Sarah Kay challenge which is "lovely lilac". This was a first for me also as I was using a Sarah Kay stamp for the first time, I borrowed it from a friend as I don´t own one myself ... yet !!

Paper: Bazzill and BasicGrey
Flower: Prima