
Áskorun vikunnar á norska kortablogginu
Sukkersött er að nota eitthvað sem ekki telst venjulegt skrappdót. Ég fór í gegnum skúffur og skápa og lagði hausinn í bleyti og þetta er útkoman. Ég flatti út lok af dós undan myntum, notaði álpappír bæði undir myndina og í ræmum og til mótvægis við allt þetta glansandi pönsaði ég út hring úr sandpappír. Og ef maður vill pæla voða djúpt má vel tengja álið við flugvélina því flugvélar eru jú smíðaðar úr áli, ekki satt? ;o)
This week´s challenge on the Norwegian challenge blog
Sukkersött is to use something that is normally not scrap related. I went through my drawers and this is what I came up with. I flattened a lid from a tin of mints and used aluminium foil both for matting and also cut into strips. As a contrast I punched a circle from sanding paper. Now, if you are a deep thinker and looking for a connection, planes are made from aluminium, right? ;o)