Monday, January 24, 2011

L for Ladies


Ég var beðin að gera afmæliskort og þurfti að koma mér í gírinn aftur eftir smá hlé. Ég er mjög ánægð með útkomuna, finnst þessir litir æðislegir saman þó þeir hafi reyndar afbakast smá í myndatökunni. Með þessu korti tek ég þátt í áskorun á bloggi sem ég hef ekki séð áður, þar eru áskoranir í stafrófsröð :o)

I was asked to make a birthday card so I had to get back in the saddle again after a short break from cardmaking. I like the way this card turned out, I love those colours. I am entering this in a challenge on a challenge blog I only just discovered. It is called Alphabet Challenge Blog and they have challenges for every letter in the alphabet :o) This time it´s L for Ladies and they want to see Ladies on your work, not just cards for ladies!

Saturday, January 8, 2011

Tækifæriskort / For any occasion

Gleðilegt nýtt ár !! Ég er að hugsa um að gera fleiri kort í þessum dúr, kannski með mismunandi textum. Það er gott að eiga á lager kort sem hægt er að nota við öll tækifæri.

Happy New Year !! I am planning to make a few more cards similar to this one, maybe with a few different sentiments. It is always good to have on hand some cards you can use for any occasion.

Sunday, December 26, 2010

Brúður / Bride

Til tilbreytingar kemur hér síða sem fór í einn jólapakkann. Þessi fallega brúður er systurdóttir mín sem gifti sig á árinu :o) Blómin eru ekki alveg svona gul í raun og veru heldur líkari mottunni og ræmunni neðst.

Here is a LO for a change. This page was a part of a Christmas gift to my sister, this is her daughter who got married this year :o) The flowers are not quite this yellow IRL, they are more cream like the photo mat.

Thursday, December 16, 2010

Skírn - baptism

Annað skírnarkort, í þetta sinn fyrir stelpu.

Another baptism card, this time for a girl.

Sunday, November 28, 2010

A spoon full of sugar #131

Vá, það er orðið langt síðan ég hef tekið þátt í áskorun! Á A spoon full of sugar blogginu er ein auðveld þessa vikuna, "Anything goes". Það hlýtur að þýða að maður megi taka þátt með hverju sem er :o) Þá er best að ég skelli þar inn þessu skírnarkorti.

It´s been a long time since I´ve entered a challenge. On A spoon full of sugar there is an easy one this week, "Anything goes". So I´m entering with this baptism card.

Image: Bildmålarna
PP: BasicGrey and Chatterbox
Flowers: I am roses and unknown
Edge punch: Martha Stewart

Saturday, November 20, 2010

1

Afmæliskort fyrir eins árs strák innblásið af kortunum hennar Donnu. Það vill til að það er tiltölulega einfalt að teikna upp töluna 1, en ef mér skyldi nú detta í hug að nota tölu eða staf sem er flóknari í laginu þarf ég líklega að kaupa skabalón frá henni :o) Ég ætlaði ekki að hafa mikið af blómum þar sem þetta er strákakort, en hef líklega gleymt mér aðeins.

A birthday card for a 1 year old boy inspired by Donna´s beautiful shaped cards. Luckily drawing the number 1 is relatively easy but if I decide to do a more complicated number or letter I will probably have to buy her templates :o) I wasn´t going to use a lot of flowers since this is a card for a boy but it looks like I got a bit carried away.

Thursday, October 28, 2010

Hjólhýsakort / The camper


Ég var að skoða bloggið hennar Donnu og heillaðist gjörsamlega af kortunum hennar sem eru sko allavega í laginu. Mig langaði að prófa að gera sjálf hjólhýsakort þar sem ég var einmitt á höttunum eftir hugmynd að afmæliskorti fyrir sextugan hjólhýsaeiganda, golfara og kórsöngvara. Ég tók því fram blað og blýant og reyndi að laða fram einhvern smá dreitil af teiknihæfileikum. Merkilegt nokk, mér tókst að klambra saman þessu korti og er nú bara nokkuð ánægð með mig :o)

I stumbled onto Donna´s blog while browsing in blogland. What a talented lady she is!! She creates all kinds of wonderful shaped cards. I was so inspired by her camper card that I decided to try to make one myself as I had to make a card for a 60 year old dedicated camper who loves to sing and golf. This is what I came up with. The sign on the doorknob translates: Out for a game of golf :o)

Sunday, October 3, 2010

Friday Sketchers #122


Með þessu brúðkaupskorti tek ég þátt í skissuáskorun vikunnar á Friday Sketchers blogginu.

This wedding card is my entry in this week´s challenge on the Friday Sketchers challenge blog.

Image: Magnolia
PP: Paper Cellar
Flowers: I am roses
Other: Corners punched with MS punch, lace, paper doily and bling

Wednesday, September 29, 2010

Herrakort / A man card


Eitt svona herrakort ;o) Mér finnst þessi mynd svo frábær en get ekki sagt með góðri samvisku að mér hafi fundist skemmtilegt að lita hana :o/

A card for an elderly gentleman ;o) As much I love this image I can´t honestly say that I loved colouring it, something was bothering me :o/ PP is BasicGrey, love this pad.

Saturday, September 25, 2010

Samúðarkort / More sympathy cards


Tvö samúðarkort í viðbót. Ég dýrka þessi blóm frá I am roses, það er svo óendanlega gaman að nota þau :o)

Two more sympathy cards. I absolutely love those flowers from I am roses, they are so much fun to use :o)

Friday, September 24, 2010

Ett trykk / Trykkpressa september



Ég var beðin að gera slatta af samúðarkortum og hér koma fyrstu tvö. Ett trykk var með fína skissu fyrir svona einföld kort í september-áskorun sinni þannig að það var upplagt að nota hana og taka þátt í leiðinni. Þetta eru líka fyrstu kortin þar sem ég nota nýju fínu blómin mín, þau pantaði ég af I am roses og nú er hún orðin nýja uppáhaldsbúðin mín :o)

I was asked to make quite a few sympathy cards and here are the first two. Ett trykk had a nice sketch for such simple cards this month so I just had to give it a go and enter. This is also my first opportunity to use my brand new and adorable flowers, I got them at I am roses which has now quickly become my favourite online store for flower shopping :o)

Thursday, September 9, 2010

Sketch Saturday #119



Með þessari afmælisgjöf handa vinkonu tek ég þátt í skissuáskorun vikunnar á Sketch Saturday blogginu. Mig langaði að prófa að gera svona "trönukort" og skellti einni skúffu undir til að setja í skartgripi sem ég gerði líka. Þetta er því heimaframleiðsla frá A til Ö :o)

This birthday gift for a friend is my entry in this week´s sketch challenge on Sketch Saturday. I got some inspiration from the talented Bev and made an easel card with a drawer underneath in which I put some jewelry that I made. I am pleased to say that my friend was delighted with this gift :o)

Stamp: Magnolia
PP: DCWV
Flowers: Prima
Edge punch: Martha Stewart